Um kreppu

Jæja, þá er búið að tala okkur inn í kreppu. Fyrir ári síðan hefði ég ekki trúað því að staðan yrði eins og hún er í dag. Hvað gerðist ? Var góðærið bara allt í plati ? Eða..... sagði kannski einhver: " Hey, ég veit, nú er komið að kjarasamningum og við skulum tala til smá kreppu til að halda lýðnum á mottunni " Og allir hinir: " Hey dude, góð hugmynd ".  Nema hvað, kannski gleymdist bara að gera ráð fyrir því að það gæti verið vesen að tala til smá góðæri aftur........ ÚPS !

Varðandi börn, skóla og kennara

Margt er nú rætt og ritað um dóminn sem féll, vegna stúlkunnar sem varð fyrir því að skaða kennarann sinn. mér finnst eins og fólk missi af aðalatriðinu í þessu. Ég ætla ekki að bölsótast yfir upphæðinni, finnst hún meira að segja lítil í sjálfu sér. En ég ætlast til þess að skólinn sé tryggður fyrir svona löguðu. Ég ætlast til að ég geti sent barnið mitt í skóla án þess að hafa áhyggjur af því að uppátæki þess setji mig á hausinn. Tók enginn eftir því að þetta var barn sem átti í hlut ???

Ég gerði margt á þessum aldri, sem auðveldlega hefði getað valdið skaða af þessu tagi eða verra.

En, það tilheyrir því að vera barn að vita ekki allt.

Ég vona að móðirin áfrýi, ég vona að hæstiréttur beri gæfu til að snúa þessum dómi og geri skólann ábyrgan.

Ef ekki, þá sé ég mig nauðbeygðan til að brjóta lög og taka 11 ára dóttur mína úr skóla. Ég hef ekki efni á að taka áhættuna á því að hún kunni að hegða sér eins og 11 ára gamalt barn með þeim afleiðingum að tjón hljótist af.

Foreldrar, tökum öll börn okkar úr barnaskóla ef þessi dómur stendur óhaggaður.


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband